Lækka laun og fækka skipum 27. nóvember 2008 09:15
Hf. Eimskipafélag Íslands hefur gripið til umfangsmikilla hagræðingaraðgerða í ljósi efnahagsaðstæðna, sem meðal annars koma fram í verulegum samdrætti á innflutningi til landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu þar segir einnig að þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til sé fækkun skipa sem þjónað hafa inn- og útflytjendum félagsins á Íslandi. Fækkað var úr 11 skipum í átta, auk þess sem gripið var til margra anarra hagræðingaraðgerða er snúa að siglingakerfinu, innanlandskerfinu og öðrum þáttum í rekstri félagsins. Í tengslum við flutningaþjónustu Eimskips á Íslandi starfa um 1.500 starfsmenn þar af um 900 á Íslandi. Til að komist verði hjá verulegri fækkun starfsmanna hefur verið ákveðið að lækka laun um 10% hjá þeim starfsmönnum sem hafa yfir 300.000 kr. mánaðarlaun ásamt því að draga úr vakta- og yfirvinnu. Þrátt fyrir þessar aðgerðir var ekki komist hjá því að grípa til uppsagna í lok mánaðarins og verður 25 starfsmönnum á Íslandi og 47 starfsmönnum í Evrópu sagt upp. Áætlaður sparnaður á ársgrundvelli mun vera 2.4 milljarðar króna þar af 550 milljónir kr. vegna lækkunar launakostnaðar. "Rétt eins og önnur fyrirtæki í landinu er Eimskip að sigla í gegnum erfitt skeið sem kemur meðal annars fram í verulegum samdrætti í innflutningi. Ofan á þetta bætast erfiðar aðstæður á alþjóðflutninga- og fjármagsmörkuðum. Því var okkur nauðugur einn kostur að grípa til umfangsmikilla hagræðingaraðgerða. Af tveimur slæmum kostum var það frekar vilji okkar að lækka laun starfsmanna sem hafa yfir 300 þúsund í mánaðarlaun, fremur en segja upp fleiri starfsmönnum í því erfiða árferði sem nú ríkir á vinnumarkaði og almennt í íslensku þjóðfélagi," segir Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskipa.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira