Jón Ásgeir: Fjárfesting í Stoðum var mistök 29. desember 2008 09:49 Jón Ásgeir Jóhannesson. „
Þegar ég horfi á stöðu Stoða í dag er auðvelt að dæma þá fjárfestingu sem mistök," segir Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, í opnugrein sem hann skrifar í Morgunblaðið í dag. Í greininni fer hann yfir viðskiptaferil sinn síðustu 20 ár, fjárfestingar sínar, átök sín fyrir dómstólum og samskipti við stjórnvöld. „Í sumum tilvikum fór ég of geyst og fjölmiðlaútrásin, Nyhedsavisen-ævintýrið, er til dæmis um það. Þegar ég horfi á stöðu Stoða í dag er auðvelt að dæma þá fjárfestingu sem mistök. Þegar ég lít yfir völlinn viðurkenni ég að hafa almennt lagt of mikla áherslu á sóknina og gætt ekki nægilega vel að vörninni. Þar liggur mín ábyrgð og afleiðingar hennar axla ég," segir Jón Ásgeir. Jón Ásgeir segir það vera hreina fjarstæðu að hann beri ábyrgð á að hafa upp á sitt einsdæmi fellt íslenska fjármálakerfið eins og fjölmargir haldi fram Í grein sinni segir Jón Ásgeir að skuldir Baugs séu nokkur prósent af því sem heildarskuldir bankanna hafi verið. Hann segist efa að þær skuldir séu ástæðu vandræða Íslendinga nú. „Vissulega eru mörg fyrirtæki sem tengjast mér í vanda þessa dagana, eins og nær öll fyrirtæki í landinu. En það er afleiðing af hruni efnahagslífsins, ekki orsök þess. Bankarnir hrundu yfir fyrirtækin, ekki fyrirtækin yfir bankana," segir Jón Ásgeir.
Tengdar fréttir Setti ég Ísland á hausinn? Sumir halda því fram að ég beri ábyrgð á því íslenskt fjármálalíf fór á hliðina nú í haust. Ég hef verið kallaður óreiðumaður, glæpamaður, fjárglæframaður, „þúsundmilljarðamaðurinn", ég hafi „komið Íslandi á hausinn" og svo framvegis. Þessa viðhorfs virðist gæta víða í þjóðfélaginu, meira að segja á Alþingi og í Seðlabankanum. Þessi viðurnefni og upphrópanir byggjast ekki á mikilli yfirvegun eða ígrundun, en eru að einhverju leyti skiljanleg í andrúmslofti reiði og öryggisleysis. Ég tek þessa dóma nærri mér og er ekki sáttur við þá. Ég er hins vegar reiðubúinn að ræða mín viðskiptamál með rökum og staðreyndum, og axla þá sanngjörnu ábyrgð sem mér ber. 29. desember 2008 14:52 Mest lesið Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Sjá meira
Setti ég Ísland á hausinn? Sumir halda því fram að ég beri ábyrgð á því íslenskt fjármálalíf fór á hliðina nú í haust. Ég hef verið kallaður óreiðumaður, glæpamaður, fjárglæframaður, „þúsundmilljarðamaðurinn", ég hafi „komið Íslandi á hausinn" og svo framvegis. Þessa viðhorfs virðist gæta víða í þjóðfélaginu, meira að segja á Alþingi og í Seðlabankanum. Þessi viðurnefni og upphrópanir byggjast ekki á mikilli yfirvegun eða ígrundun, en eru að einhverju leyti skiljanleg í andrúmslofti reiði og öryggisleysis. Ég tek þessa dóma nærri mér og er ekki sáttur við þá. Ég er hins vegar reiðubúinn að ræða mín viðskiptamál með rökum og staðreyndum, og axla þá sanngjörnu ábyrgð sem mér ber. 29. desember 2008 14:52