Kreditkortavelta erlendis minnkar um helming frá í fyrra 14. nóvember 2008 11:31
Tölur Seðlabankans sýna að kreditkortavelta erlendis í október var að raunvirði aðeins ríflega helmingur veltunnar á sama tíma í fyrra. Verulegur samdráttur varð einnig í kortaveltu innanlands í síðasta mánuði. Dróst innlend kreditkortavelta saman um 11% að raungildi á milli ára en innlend debetkortavelta í verslunum saman um 19% á sama kvarða. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að íslenskir neytendur eru nú teknir að herða beltin svo um munar, og sér í lagi hefur neysla landsmanna á erlendri grund og kaup á varanlegum neysluvörum hrunið ef marka má nýjustu tölur Seðlabankans um kortaveltu og tölur Rannsóknaseturs verslunarinnar um veltu í smásöluverslun. Hér verður þó að hafa í huga að líklegt er að heimilin hafi haft óvenjumikið reiðufé milli handa í mánuðinum. Mikið var um úttektir af óbundnum bankareikningum á fyrri hluta síðasta mánaðar þegar óvissan um framtíð bankakerfisins var hvað mest. Þetta endurspeglast í debetkortanotkun í bönkum, sem var með því mesta sem sést hefur. Væntanlega hafa heimilin kosið að nota hluta þessa reiðufjár til innkaupa fremur en leggja sjóð sinn allan inn á banka aftur eftir að línur fóru að skýrast varðandi framtíð viðskiptabankanna.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira