Viðskipti innlent

Tekjur landsmanna nærri þúsund milljarðar í fyrra

Tekjur einstaklinga hér á landi námu samanlagt 992 milljörðum króna í fyrra. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins og er vísað í skattframtöl landsmanna þessu til stuðnings. 

Tekjum er skipt í tvo flokka með tilliti til skattlagningar, þ.e. launatekjur og fjármagnstekjur. Árið 2007 námu launatekjur landsmanna 610 milljörðum króna og höfðu aukist um nærri 14 prósent frá fyrra ári en fjármagnstekjurnar reyndust rúmir 380 milljarðar króna.

„Á undanförnum árum hefur hlutur fjármagnstekna farið vaxandi í heildartekjum einstaklinga. Skattlagning fjármagnstekna var einfölduð árið 1997 þegar fallið var frá skattlagningu þeirra eins og um launaðar tekjur væri að ræða. Öran vöxt fjármagnstekna undanfarin ár má rekja til þess m.a. að möguleikar einstaklinga til að ávaxta fé sitt hafa farið mjög vaxandi. Skattstofn fjármagnstekna telur bæði vaxtatekjur, arð og leigutekjur en einnig arð af sölu hlutabréfa og það er síðasttaldi flokkurinn sem hefur vaxið langmest á undanförnum árum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Þar af voru 151 milljarðar króna vegna söluhagnaðar en 94 milljarðar vaxta-, arð og leigutekjur," segir í vefritinu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×