Stefnir í 85 milljarða kr. greiðslu úr ríkissjóði til erlendra fjárfesta 4. desember 2008 12:31
Athygli vekur hve lítil eftirspurn var eftir ríkisbréfum í fyrsta útboði Seðlabankans á nýjum flokki þeirra eftir bankahrunið. Samkvæmt því stefnir í að ríkissjóður þurfi að greiða erlendum fjárfestum allt að tæplega 85 milljarða kr. þann 12. desember. Útboðinu var ætlað að koma til móts við erlenda fjárfesta sem eiga um 100 milljarða í eldri flokki ríkisbréfa með gjalddaga í þessum mánuði. Hinsvegar var aðeins tekið tilboðum upp á 15,5 milljarða kr. í útboðinu nú. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að innlendur fjármálamarkaður tekur nú jafnt og þétt á sig mynd að nýju eftir hrunið í októberbyrjun. Skref í því ferli var stigið í gær þegar Seðlabankinn efndi til fyrsta útboðs ríkisbréfa frá því bankakreppan skall á. Bréf í flokknum RIKB 10 0317 voru boðin út með hollensku sölufyrirkomulagi, en í því felst að lægsta verð sem samþykkt er ræður verði á öllum seldum bréfum. Alls bárust tilboð að fjárhæð u.þ.b. 26,5 milljarða kr. en tilboðum upp á 15,5 milljarðar kr. var tekið og var um 16,75% ávöxtunarkröfu að ræða. Athygli vekur að eftirspurn í þessu útboði skyldi ekki vera meiri en að framan greinir. Útboðinu var ætlað að koma til móts við fjárfesta sem eiga ríkisbréf í flokknum RIKB 08 1212, en sá flokkur er á gjalddaga 12. desember. Flokkurinn er nú u.þ.b. 100 milljarðar kr. að stærð og að stærstum hluta í eigu erlendra fjárfesta. Ljóst er að áhugi þeirra á kaupum í útboði gærdagsins var takmarkaður, sem hlýtur að vera ríkisstjórn og Seðlabanka nokkurt áhyggjuefni. Greining tekur fram að rétt sé að hafa í huga að í næstu viku verður útboð á nýjum 2ja ára ríkisbréfaflokki sem einnig nýtist þeim sem eiga bréf á gjalddaga í desember til framlengingar á stöðum sínum. Verður forvitnilegt að fylgjast með eftirspurn í því útboði. Ef hún verður takmörkuð líkt og í gær er ríkissjóði nokkur vandi á höndum, því hann þarf að standa skil á mismun gjalddagans 12. desember og sölu á nýjum ríkisbréfum í útboðum gærdags og næstu viku.Miðað við niðurstöðu gærdagsins vantar enn mikið upp á að það bil sé brúað. Ríkissjóður á raunar talsvert digra innistæðu hjá Seðlabanka eftir undangenga ríkisbréfaútgáfu, en komi ofangreind staða upp getur það höggvið töluvert skarð í þann sjóð.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira