Vísaði frá kröfu um að lánssamningi vegna SPRON-bréfa yrði rift 23. september 2008 16:25 Dögg Pálsdóttir
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá kröfu þrotabús Insolidum, fyrirtækis Daggar Pálsdóttur hæstaréttarlögmanns og varaþingmanns og sonar hennar, Páls Ágústs Ólafssonar, um að lánssamningi við Saga Capital vegna kaupa á stofnfjárbréfum í SPRON verði rift. Hins vegar var hafnað kröfu Saga Capital um frávísun á kröfu Insolidum um að kaupsamningi vegna bréfanna yrði rift. Saga Capital og Insolildum hafa frá því á síðasta ári tekist á um umrædd stofnfjárbréf í SPRON og fjármögnun þeirra. Forsaga málsins er sú að Insolidum keypti stofnfjárbréf í SPRON í gegnum Saga Capital í júlí á síðasta ári. Bréfin keypti félagið fyrir tæpar 600 milljónir og Saga Capital fjármagnaði allt saman. Eftir standa 320 milljónir af skuldbindingunni. Eftir að gengi bréfanna í SPRON féll mikið á fyrstu mánuðum félagsins á markaði fór Saga Capital fram á svokallað veðkall, það er aukið tryggingafé vegna bréfanna. Í kjölfarið af því reyndi Insolidum að rifta samningum við bankann á þeim forsendum að reglur hefðu verið brotnar í viðskiptum með bréfin. Insolidum hætti á sama tíma að greiða af láninu jafnvel þótt samningurinn væri í fullu gildi þar til búið er að taka afstöðu til málsins fyrir dómi. Þá fór Saga Capital fram á að fá öll hlutabréf í fyrirtækinu og yrði þar með réttmætur eigandi fyrirtækisins. Það mál fór fyrir Héraðsdóm og síðar Hæstarétt sem féllst ekki á þessa kröfu fjárfestingarbankans. Þá fór Saga Capital fram á að Insolidum yrði tekið til gjaldþrotaskipta og féllst héraðsdómur á það í maí. Hæstiréttur staðfesti það og er félagið því gjaldþrota. Í málinu sem dómurinn fjallaði um í dag var tekin fyrir krafa þrotabús Insolidum um að samningi félagsins við Saga Capital um kaup á bréfunum í SPRON yrði rift og sömuleiðis að lánssamningi vegna kaupanna yrði rift. Fóru forsvarsmenn Insolidum fram á þetta á þeim grundvelli að Saga Capital hefði beitt blekkingum við viðskiptin, bæði með því að greina ekki frá því hver væri seljandi stofnfjárbréfanna og með því að verðmæti stofnfjárhluta hafi í reynd aðeins verið um 60 prósent af því verði sem greitt hafi verið fyrir þá. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst ekki á að vísa ætti frá kröfu Insolidum um að rifta samningi um kaup á bréfunum eins og Saga Capital fór fram á. Hins vegar vísaði dómurinn frá þeirri kröfu Insolidum að lánssamningi vegna kaupa á bréfunum yrði rift.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira