Viðskipti innlent

Laun hækkuðu um 2,2% frá fyrri ársfjórðungi

Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 1,1% að meðaltali á þriðja ársfjórðungi 2008 og laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 4,8%. Þetta þýðir hækkun launavísitölu um 2,2% á þessum tíma. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 9,4%, þar af um 8,9% á almennum vinnumarkaði og um 10,7% hjá opinberum starfsmönnum, eftir því sem fram kemur á vef Hagstofunnar.

Laun verkafólks á almennum markaði hækka um 11% á einu ári

Frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun verkafólks mest eða um 1,5% en laun tækna og sérmenntaðs starfsfólks hækkuðu minnst, um 0,8%. Laun verkafólks hækkuðu jafnframt mest frá fyrra ári eða um 11,0% en laun stjórnenda hækkuðu minnst, 6,8%.

Mestar launahækkanir í byggingarstarfsemi en minnstar í verslun

Hækkun launa eftir atvinnugrein mældist mest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 2,2% frá fyrri ársfjórðungi en minnst mældist hækkun launa í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu 0,6%. Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun jafnframt mest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða um 11,6% en minnst mældist hækkunin í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu, 8,1%.

Helstu hækkanir eru samkvæmt kjarasamningum

Í framhaldi af gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, sem að mestu leyti komu til framkvæmda á fyrsta og öðrum ársfjórðungi, komu kjarasamningar fjölmennra hópa opinberra starfsmanna til framkvæmda á þeim þriðja.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×