Sigurður undirbýr tilboð í Kaupþing í Lúxemborg 23. nóvember 2008 18:31
Fyrrum stjórnarformaður Kaupþings er meðal þeirra sem undirbúa nú tilboð í Kaupþing í Lúxemborg. Skilanefnd bankans hefur borist fjölda tilboða í dótturfélagið. Engin rannsókn hefur farið fram á starfsemi Kaupþings banka í Luxemborg. Heimildir fréttastofu herma að tilboð frá Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings og Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, á að kaupa bankann sé í burðarliðnum. Muni þeir fara fyrir hópi erlendra fjárfesta, m.a. hinum þýska Landesbank. Nú þegar hefur skilanefnd Kaupþings borist fjölda tilboða í bankann, aðallega frá erlendum fjárfestum. Kaupþing í Lúxemborg er dótturfélag móðurbankans hér á landi en lýtur lögum og reglum þar í landi. Mikil og sterk hefð er fyrir bankaleynd í Lúxemborg og hefur borgin verið nefnd sem hið fullkomna skjól fyrir fjármagnsflótta. Við fall bankanna var bankinn settur í greiðslustöðvun og er í dag á forræði fjármálaeftirlitsins þar í landi. Heimildir fréttastofa herma að mikilvægar upplýsingar um fjármagnsflótta frá Íslandi séu að finna í íslensku bönkunum í Lúxemborg. Engin rannsókn hefur þá farið fram varðandi starfsemina í Lúxemborg en skilanefndirnar hafa eingöngu skoðað starfsemi móðurbankans hér á landi. Hin sterka bankaleynd í Lúxemborg kemur líka í veg fyrir að skilanefndirnar hafi greiðan aðgang að upplýsingum bankans. Fjöldi tilboða hafa borist í eignir bankanna en samkvæmt heimildum fréttastofu er viðskiptaráðuneytið nú að mynda hóp til að hafa yfirumsjón með slíkum tilboðum. Þá hefur erlent fyrirtæki verið ráðið til að verðmeta nýju og gömlu bankanna.
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira