Seðlabankinn útskýrir nánar um greiðslur milli landa 17. nóvember 2008 11:57
Af gefnu tilefni vill Seðlabanki Íslands útskýra hvernig greiðslur milli landa eiga sér stað í þeim tilvikum þegar þær fara um Seðlabanka Íslands. Hér er tekið dæmi af greiðslum frá Bretlandi til Íslands en útskýringin á við um hvaða mynt sem er og jafnt um greiðslur til og frá Íslandi. "Að tala um að greiðsla í erlendri mynt sé send til Íslands er að vissu leyti villandi. Greiðslur í GBP fara í raun aldrei út úr greiðslukerfum Bretlands. Sama á við um DKK og Danmörku, EUR og Evrulönd og svo framvegis," segir á vefsíðu Seðlabankans. "Það sem gerist er að greiðslan er lögð inn á reikning íslensks banka í breskum banka í Lundúnum. Á grundvelli upplýsinga um þessa innlögn greiðir íslenski bankinn endanlegum móttakanda. Í dag fer þetta þannig fram að greiðslan er lögð inn á reikning Seðlabankans hjá National Westminster Bank. Þegar Seðlabankinn fær upplýsingar um greiðsluna, greiðir hann viðskiptabanka móttakandans og sendir upplýsingarnar áfram til hans. Viðskiptabankinn greiðir síðan endanlega inn á reikning móttakanda." Ennfremur er áréttað að þar sem Seðlabankinn er aukamilliliður í þessu tilviki getur reynst snúið að framkvæma greiðslur til Íslands í gegnum netbanka og hafi bankinn nokkur dæmi þess að þetta hafi valdið vandkvæðum og seinkum greiðslna. Bankinn mælir því eindregið með því að ef einhver vafi leikur á um hvernig fylla á út umsókn á netinu þá hafi greiðandinn frekar beint samband við sinn banka og óski eftir millifærslunni á gamla mátann. Það hefur brugðið við að greiðslur eru lagðar inn á reikninga Seðlabankans, en Seðlabankinn ekki fengið neinar upplýsingar um greiðsluna aðrar en fjárhæðina á daglegum yfirlitum. Þetta hefur orðið til þess að tefja afgreiðslu. Til að auka líkurnar á því að Seðlabankinn fái tímanlegar og réttar upplýsingar er best að greiðandinn biðji sinn banka um að greiðslan sé send sem „International Customer Transfer", og að Seðlabankinn fái sent svo kallað SWIFT MT103-skeyti. Ef það er gert er tryggt að hægt verði að afgreiða til viðskiptabankans sama dag og Seðlabankinn fær greiðsluna. Að öðru leyti er vísað til greiðslufyrirmæla fyrir hinar ýmsu myntir sem fram koma á vef Seðlabankans. Að lokum vill bankinn eindregið vara við því að nota greiðslufyrirmæli þar sem einungis er tekið fram nafn eins þriggja viðskiptabankanna og síðan upplýsingar um nafn og reikningsnúmer viðtakanda. Það veldur því að greiðslan verður send inn á einhvern af reikningum gömlu bankanna og mun að öllum líkindum festast þar. Fyrir þá sem hafa þegar gert þetta og ekki fengið greiðsluna bendum við á að afturkalla hana og senda á ný í samræmi við ofangreind greiðslufyrirmæli.
Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira