Viðskipti innlent

Dótturfélag Skipta gerir samning við stjórnvöld í Slóveníu

Sirius IT dótturfélag Skipta hefur gert samning við stjórnvöld í Slóveníu sem felur í sér sölu og þjónustu á eftirlitskerfi með skipaumferð í slóvenskri lögsögu.

Í tilkynningu um málið segir að ríkisstjórn Slóveníu bauð út á evrópska efnahagssvæðinu kaup á eftirlitskerfi með skipaflota sem siglir í slóvenskri lögsögu. Á grundvelli tilboða sem bárust í útboðið var gengið til samninga við Sirius IT, dótturfélag Skipta í Danmörku.

Hreinn Jakobsson, stjórnarformaður Sirius IT, segir þetta afar ánægjulega niðurstöðu fyrir félagið.

„Eftirlitskerfið sem nefnist V-track er hannað til að fylgjast með allri skipaumferð á tilteknu svæði, ekki ósvipað því sem notað er við flugumferðastjórn. Kerfið uppfyllir alla staðla sem Evrópusambandið setur á slík eftirlitskerfi og nú þegar eru fleiri Evrópusambandslönd að skoða þetta kerfi til innleiðingar enda skýrar reglur um að öll Evrópusambandsríkin sem hafi lögsögu á sjó þurfi að hafa eftirlit með allri skipaumferð innan sinnar lögsögu," segir Hreinn

Í dag er V-track eftirlitskerfið í notkun hjá átta Evrópuþjóðum. Kerfið er einfalt í uppsetningu og afar notendavænt. Kerfið tengist gervihnöttum sem móttaka upplýsingar um staðsetningu skipanna sem senda svo upplýsingarnar áfram inn í V-track kerfið en þaðan hafa allir sem skilgreindir eru sem notendur kerfisins beinan aðgang að upplýsingunum í gegnum vefviðmót.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×