Um 87,5% af kvótanum frá 1984 hefur skipt um eigendur 13. nóvember 2008 13:54
Könnun sem LÍÚ gerði í vor sýndi að 87,5% af upphaflega kvótanum sem úthlutað var árið 1984 hefur skipt um eigendur og verið keyptur á núverandi útgerðaraðilum. Þetta kemur fram á vefsíðu LÍÚ."Sú gagnrýni að útgerðarmenn landsins geri út á gjafakvóta er á veikum grunni byggð því könnun frá því í vor sýndi að um 87,5% aflaheimildanna sem úthlutað var 1984 hafa skipt um hendur og verið keyptar af núverandi útgerðaraðilum. Aðeins um 12,5% upphaflegs kvóta er enn í eigu þeirra sem fengu honum úthlutað," segir Adolf Guðmundsson, nýkjörinn formaður LÍÚ.Adolf segir einnig að í umræðu um fiskveiðistjórnunarkerfið sé gjarnan ýjað að því að það sé sniðið að þörfum stærri útgerða. Í þeirri umræðu gleymist t.d. sú staðreynd að frá því að aflamarkskerfinu var komið á hafi 32% veiðiheimilda í þorski verið færðar frá aflamarksskipum til smærri báta auk þess sem umtalsverðar aflaheimildir í ýsu hafi verið fluttar til þeirra.Könnunin, sem vísað er til frá í vor, náði til fisktegunda sem voru kvótasettar á sínum tíma og hafa verið það óslitið síðan. Þetta eru þorskur, ýsa, ufsi, karfi, grálúða, síld og loðna. Könnunin var gerð til að undirstrika atvinnurétt útgerðarmanna sem varinn er af eignarréttarákvæðum stjórnarskrárinnar og vegna villandi umræðu um að þeir sem stunda útgerð í dag geri það í krafti aflaheimilda frá árinu 1984.
Mest lesið „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira