Enski boltinn

Zaki verður seldur hæstbjóðanda

NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Amr Zaki sem spilar sem lánsmaður hjá Wigan í ensku úrvalsdeildinni, verður seldur til hæstbjóðanda þegar samningur hans við Wigan rennur út.

Þetta kemur fram á heimasíðu Zamalek, sem er liðið sem hann er samningsbundinn í Egyptalandi.

Wigan ætlar að reyna að kaupa hann að samningstímanum loknum næsta sumar, en hætt er við að félagið fái mikla samkeppni þar sem framherjinn öflugi hefur þegar skorað átta mörk í tólf leikjum í úrvalsdeildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×