Enski í dag: United tók við sér í síðari hálfleik 19. janúar 2008 16:56 Wayne Rooney skoraði fyrra mark United í dag NordicPhotos/GettyImages
Sex af sjö leikjum í ensku úrvalsdeildinni í dag er nú lokið. Toppliðin þrjú unnu öll sigur í sínum leikjum, en þurftu að hafa mismikið fyrir því. Manchester United heldur toppsætinu eftir 2-0 útisigur á Reading. United fékk mikið af góðum færum í leiknum en náði ekki að nýta þau fyrr en stundarfjórðungur var eftir. Þá kom Wayne Rooney gestunum yfir með eftir sendingu frá Carlos Tevez og það var svo hinn eldheiti Cristiano Ronaldo sem innsiglaði sigurinn með marki í uppbótartíma. 'Ivar Ingimarsson var á sínum stað í liði Reading en Brynjar Björn Gunnarsson lék ekki með í dag. Arsenal var aldrei í vandræðum með Fulham og vann öruggan 3-0 útisigur. Emmanuel Adebayor skoraði tvö mörk með skalla í fyrri hálfleiknum og Tékkinn Tomas Rosicky tryggði sigurinn með þriðja markinu. Arsenal heldur öðru sætinu eftir sigurinn en Fulham er áfram í bullandi fallhættu í næst neðsta sætinu. Chelsea var líka lengi að tryggja sér sigur á baráttuglöðum Birmingham-mönnum, en það var framherjinn Claudio Pizarro sem skoraði sigurmarkið seint í leiknum. Chelsea lék ekki sérlega vel í leiknum, en tryggði sér samt sigur eins og oft áður í vetur. Portsmouth lenti undir 1-0 gegn Derby á heimavelli þegar Lewin Nyatanga kom gestunum óvænt yfir. Adam var hinsvegar ekki lengi í paradís og hinn magnaði Benjani skoraði þrennu fyrir Portsmouth og tryggði sínum mönnum sigur með sínu þriðja marki þegar aðeins 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Hermann Hreiðarsson var í byrjunarliði Portsmouth og spilaði 90 mínútur. Robbie Keane fagnar 100. markinuNordicPhotos/GettyImages 100. mark Robbie Keane fyrir Tottenham Tottenham lagði Sunderland 2-0 á heimavelli en heimamenn voru á hælunum lengst af í leiknum og varla hægt að segja að sigurinn hafi verið verðskuldaður. Aaron Lennon kom Tottenham yfir eftir innan við tvær mínútur og voru heimamenn sprækir á fyrstu mínútum leiksins. Eins og svo oft áður slakaði Tottenham á eftir markið og í síðari hálfleiknum var Sunderland miklu betri aðilinn í leiknum og hefði með öllu átt að jafna úr einhverju af færum sínum. Það var hinsvegar írski landsliðsmaðurinn Robbie Keane sem innsiglaði sigur Tottenham með marki í uppbótartíma - hans 100. mark fyrir félagið.Loks skildu Blackburn og Middlesbrough jöfn 1-1 á Ewood Park þar sem Boromenn voru klaufar að vinna ekki sigur. David Wheater kom gestunum yfir í fyrri hálfleiknum, en eftir að Boro-menn fóru illa með nokkur góð færi í þeim síðari - refsaði Matt Derbyshire þeim með því að jafna fyrir Blackburn
Enski boltinn Mest lesið Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur Íslenski boltinn „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Bjóða hverjum sem vinnur Littler 84 milljónir Sport Rosenborgarar Freys óstöðvandi Fótbolti Mbappé sár eftir HM Fótbolti „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ Íslenski boltinn „Góðir tímar framundan“ Íslenski boltinn Littler rústaði metum og varði titilinn Sport „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Sjá meira