Hannes Jón eins og ballerína Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. janúar 2008 14:21 Sigurður Sveinsson, einn sérfræðinga Vísis um EM í handbolta. „
Ég er fullur eftirvæntingar. Þetta verður algjör veisla," sagði Sigurður Sveinsson, einn sérfræðinga Vísis um EM í handbolta. „Ég ætla að byrja á því að horfa á Noreg-Danmörk og svo á Ísland-Svíþjóð," sagði Sigurður en öll liðin spila á EM í dag og því mikið um að vera. En aðalmálið er leikur Íslands og Svíþjóðar sem er án efa einn af stærstu leikjum dagsins. „Það væri ágætt að fara auðveldu leiðina einu sinni, ekki þá erfiðu eins og svo oft áður. En það er erfitt að spá fyrir um þetta enda svo gríðarlega jafnt mót. Ég gef þess vegna lítið fyrir þær spár sem hafa birst síðustu daga. Þetta getur farið á hvaða veg sem er." Sigurður hefur áhyggjur af vinstri væng landsliðsins í ljósi þeirra meiðsla sem hafa hrjáð rétthentar skyttur liðsins. Arnór Atlason heltist úr lestinni á síðustu stundu og fór ekki með til Noregs. „Logi og Garcia hafa þar að auki verið mikið meiddir en Logi hefur verið góður í síðustu leikjum. Annars efast ég ekki um að menn séu klárir í slaginn og hef ég ekki miklar áhyggjur af sóknarleiknum. Kannski helst að ég hafi áhyggjur af því að menn séu ekki nógu fljótir að bakka í vörn." Svíar mæta til lið með sterkt lið í kvöld. „Ég býst við því að Alfreð byrji með 5-1 varnarleik með Guðjón Val fremstan gegn Kim Andersson. Þá er bara um að gera fyrir hina varnarmennina að vera á tánum." „Svo er aldrei að vita að við eigum leynivopn í Hannesi Jóni. Hann dansaði eins og ballerína í leiknum um helgina. Tékkarnir kiknuðu hreinlega í hnjáliðunum og eru sennilega enn að jafna sig."
Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira