Þriggja ára samstarfsamningur Háskóla Íslands og Símans 27. nóvember 2008 10:57
Í dag undirrituðu Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands og Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, samstarfssamning til þriggja ára. Hann felur í sér umfangsmikið samstarf, m.a. á sviði rannsókna og nýsköpunar.Í tilkynningu um málið segir að samningurinn sé afrakstur viðræðna, sem byggðu á ákveðinni aðferðarfræði þar sem kortlagðir voru snertifletir í starfsemi þessara aðila, með ávinning beggja að leiðarljósi. Síminn er fyrst íslenskra fyrirtækja sem háskólinn gerir samning við undir merkjum þessarar aðferðarfræði.Alls eru skilgreind 12 verkefni í samningnum sem aðilar hyggjast koma til framkvæmda á næstu þremur árum. Þar á meðal munu Háskóli Íslands og Síminn auka rannsóknarsamstarf sitt og skuldbinda sig til að standa sameiginlega að einni rannsóknarumsókn í erlenda samkeppnissjóði á ári.Samvinna um lokaverkefni á stigi BSc og MSc gráða sem og á doktorsstigi er hluti af samningnum. Ennfremur felur hann í sér nýjungar fyrir nemendur HÍ, í formi skólastarfs (co-op) og starfsnáms (design clinic), menntun og starfsþróun fyrir starfsmenn Símans og þróunarverkefni um sérsniðnar þjónustulausnir fyrir nemendur og starfsmenn Háskóla Íslands.Þá hefur Síminn ákveðið að styðja Afreks- og hvatningarsjóð stúdenta Háskóla Íslands en sá sjóður styrkir nemendur sem sýnt hafa afburðaárangur í námi. Alls mun Síminn styðja við bakið á sex nemendum um þriggja ára skeið. Þessi stuðningur er ómetanlegur til hvatningar og til að sporna við atgervisflótta ungs og hæfileikaríks fólks á þeim erfiðleikatímum sem þjóðin stendur nú frammi fyrir.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira