Guðjón: Leikmenn vita hvað bíður þeirra Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. desember 2008 13:15 Guðjón er á leið í enska boltann á ný. Mynd/Daníel
Guðjón Þórðarson heldur til Englands í dag en hann mun formlega taka við starfi knattspyrnustjóra Crewe Alexandra á morgun. Vísir náði tali af Guðjóni áður en hann hélt af landi brott en hann sagðist hlakka til að takast á við þetta verkefni. Crewe er í botnsæti ensku C-deildarinnar og er Guðjóni ætlað það verkefni að bjarga liðinu frá falli. „Þetta leggst vel í mig. Ég hlakka til. Þetta verður samt gríðarlega erfitt en það er bara gaman af því," sagði Guðjón. Crewe vann í gær sinn fyrsta útisigur á tímabilinu er liðið vann 4-1 sigur á Hartlepool. Engu að síður er liðið enn í neðsta sæti deildarinnar með sextán stig en fjögur neðstu liðin falla úr deildinni sem telur 24 lið. „Þetta var góður útisigur og það var sautján ára strákur sem brillaði á hægri kantinum í leiknum. Leikmenn vita líka að kallinn er að koma og eru því að gera sig klára," sagði Guðjón í léttum dúr. Hann segist þekkja ágætlega til leikmanna liðsins. „Ég þekki fyrirliðann vel og hann veit alveg hvað bíður þeirra leikmanna. Við þurfum að bretta ermarnar. Ég gæti sótt 2-3 leikmenn í janúar og það vill enginn missa sæti sitt í liðinu." Guðjón á þó ekki von á því að kaupa leikmenn til félagsins heldur fá þá á láni til loka tímabilsins. „Ég mun ræða við þá knattspyrnustjóra sem ég þekki til og reyna frekar að fara þá leið en að kaupa menn." Sem fyrr segir hefur Guðjón störf í fyrramálið. „Ég á fund með formanninum í fyrramálið og svo þjálfurunum. En ég býst við því að það fyrsta sem þarf að gera er að skoða leikfræðilega þáttinn hjá liðinu. Mér mun ekki gefast neitt svigrúm til að auka þrekæfingar eitthvað sérstaklega enda á liðið sjö leiki í janúar." „Ég á þrjá leiki í minni fyrstu viku. Fyrst er leikur á laugardegi, svo á þriðjudegi og svo aftur á laugardegi. Fyrsti leikurinn er í bikarkeppninni gegn Millwall á útivelli af öllum stöðum. Stuðningsmenn liðsins taka yfirleitt á móti andstæðingnum með því að grýta rúturnar þeirra." Guðjón man einnig vel eftir rimmum Stoke og Millwall þegar hann var stjóri fyrrnefnda liðsins. „Þeir eyðilögðu alltaf áhorfendasvæði gestanna þegar þeir komu. Brutu öll klósett og vaska og rifu einnig vatnspípurnar í veggjunum. Þetta eru klikkaðir menn." Spurður um hvort hann eigi von á því að breytingar verði gerðar á starfsliði félagsins sagði Guðjón að það yrði skoðað eins og annað. „Þetta var allt með skipulegum hætti þegar að Dario Gradi var knattspyrnustjóri en hefur þetta verið á niðurleið síðustu átján mánuði. Það þarf að skoða hvaða hlekkir það voru sem gáfu eftir og ég mun vinna náið að þessu máli með stjórninni. Okkur er vissulega þröngur stakkur skorinn en við erum þó ekki í snörunni." Gradi tók tímabundið við starfi knattspyrnustjóra aftur í haust eftir að Matt Holland var sagt upp störfum. „Dario telur að það þurfi að styrkja leikmannahópinn ef liðið ætlar að bjarga sér frá falli. En ég tel að þarna séu leikmenn sem hafa ekki skilað sínu besta og eigi að geta gert betur. Það er þá mitt að fá þá til að vakna til lífsins." „En þetta er auðvitað fyrst og fremst spurning um að bjarga liðinu. Liðið þarf líklega 33-34 stig til þess en það er nú með sextán stig. Þetta er því ekkert vonlaus barátta." Guðjón gerði samning við Crewe sem gildir til loka tímabilsins en þann 1. janúar tekur við sex mánaða rúllandi samningur. Það þýðir að Guðjón mun alltaf eiga hálft ár eftir af samningi sínum við Crewe og hans launamál gerð upp samkvæmt því þegar kemur að því að hann lætur af störfum. „Þetta er vissulega ekki algeng leið en þetta var eitthvað sem ég bauð þeim upp á. Ég hefði getað gert átján mánaða samning en þetta fyrirkomulag getur verið hagstætt fyrir báða aðila." Guðjón tók við liði ÍA fyrir þarsíðasta tímabil og hætti á miðju tímabili nú í sumar. Hann kveður því íslenskan fótbolta í bili nú er hann fer aftur til Englands þar sem hann hefur áður þjálfað Stoke, Barnsley og Notts County. „Ég vona að íslenskur fótbolti haldi áfram að vaxa og dafna. Það er brekka framundan í boltanum fyrir öll lið og árið framundan verður örugglega erfitt. En ég vona að menn horfi jákvætt á þetta. Ég held að í þessu árferði felist ákveðin tækifæri og menn þurfi nú að huga betur að grunnstarfsseminni - hlúa betur að ungu strákunum." „Ef menn verða hófstilltir í sinni kröfugerð og átti sig á því með hvaða efnivið þeir eru með í höndunum verði það íslenskri knattspyrnu til framdráttar."
Enski boltinn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Handbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Felldi tár og sendi fingurkoss til himna Sport Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira