Enski boltinn

Pulis fær pening í janúar

NordicPhotos/GettyImages

Tony Pulis, stjóri nýliða Stoke í ensku úrvalsdeildinni, hefur fengið grænt ljós frá stjórn félagsins til að styrkja leikmannahópinn í janúar.

Gamla Íslendingafélagið hefur komið mikið á óvart í deildinni í vetur og hefur nælt í 18 stig í fyrstu 15 leikjum sínum.

Stoke er í 14. sæti deildarinnar og hefur blásið á hrakspár þeirra sem ætluðu félaginu ekkert annað en fall í vor.

Tony Pulis er jarðbundinn og segir mikið eftir af tímabilinu.

"Deildin er svo þétt að fjögur stig til eða frá myndu breyta stöðu liðsins gríðarlega. Það er mikið eftir af leiktíðinni enn, en við ætlum að styrkja leikmannahópinn í janúar," sagði Pulis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×