Microsoft festir gengi krónunnar í 120 fyrir evruna 20. nóvember 2008 09:54
Microsoft Íslandi hefur náð samkomulagi við höfuðstöðvar Microsoft um að öll viðskipti íslenskra fyrirtækja og almennings við Microsoft muni miðast við að gengi evrunnar sé 120 kr.. Skráð gengisvísitala Seðlabankans stendur nú í u.þ.b. 174 krónum, sem þýðir að Microsoft mun í viðskiptum sínum við íslensk fyrirtæki ganga út frá því að krónan sé u.þ.b. 31% sterkari en hún raunverulega er, með tilheyrandi kjarabótum fyrir íslenskan efnahag. Í tilkynningu um málið segir að ástand efnahagslífsins hér á landi sé ástæða þessarar breytingar, en þetta er í fyrsta sinn sem Microsoft beitir þessari aðferð við að koma til móts við þjóð í efnahagskreppu. Fyrirtækið hefur að vísu áður beitt sértækum aðgerðum við slíkar aðstæður, t.d. í Argentínu. Þetta eru ekki einu aðgerðir Microsoft Íslandi til að koma til móts við íslenskt efnahagslíf síðustu vikurnar. Áður hefur komið fram að Microsoft Íslandi fékk sérstaka flýtimeðferð hjá höfuðstöðvum Microsoft við að innleiða svokallað BizSpark-verkefni hér á landi, en það miðar að því að veita sprotafyrirtækjum aðgang að hugbúnaði og þróunartólum án endurgjalds. „Microsoft Íslandi hefur trú á íslensku efnahagslífi til lengri tíma, þótt við stöndum frammi fyrir erfiðleikum næstu vikur og mánuði. Það þurfa allir að leggjast á eitt við að halda atvinnulífinu gangandi og þetta er okkar framlag. Stjórnendur í höfuðstöðvum Microsoft höfðu mikinn skilning á þeirri stöðu sem hér er komin upp og það var afar ánægjulegt að sjá hversu langt þeir voru tilbúnir að ganga til að leggja okkur lið í að taka stöðu með krónunni og þar með íslensku atvinnulífi," segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi.
Mest lesið Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Viðskipti innlent Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Atvinnulíf Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Viðskipti innlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Sjá meira