Viðskipti innlent

Gamla Kaupþing afskráð

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Kaupþing í Borgartúni.
Kaupþing í Borgartúni.
Skilanefnd Kaupþings banka hefur óskað eftir því við Kauphöll Íslands að viðskiptum verði hætt með hlutabréf félagsins.

„Til grundvallar beiðninni liggur bréf stjórnar Kaupþings banka hf. til Fjármálaeftirlitsins (FME) dagsett 8. október síðastliðinn þar sem stjórnin segir af sér og óskar eftir því að skilanefnd skipuð af FME taki yfir rekstur bankans“, segir í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×