58 útileikir í röð án sigurs á þeim stóru 10. janúar 2008 21:50 Tottenham á enn mjög langt í land með að ná toppliðunum á Englandi NordicPhotos/GettyImages
Tottenham hefur ekki sótt gull í greipar hinna fjögurra stóru á Englandi undanfarin ár. Í skemmtilegri samantekt Opta kemur í ljós að liðið hefur aðeins unnið tvo af 63 leikjum sínum gegn bestu liðum Englands á útivelli frá stofnun úrvalsdeildarinnar. Tottenham var betri aðilinn í leiknum gegn Arsenal á Emirates í gærkvöldi þar sem liðin mættust í fyrri viðureign sinni í undanúrslitum enska deildarbikarsins. Tottenham komst yfir í leiknum, en eins og venjulega, náði liðið ekki að landa sigrinum. Lundúnaliðið hefur síðustu ár hótað því að komast inn í hóp Manchester United, Arsenal, Chelsea og Liverpool með því að hafna í fimmta sæti deildarinnar tvö ár í röð. Væntingarnar voru því meiri en nokkru sinni fyrr í sumar eftir að félagið hafði enn á ný eytt vænum summum til leikmannakaupa. Annað kom heldur betur á daginn og var Martin Jol knattspyrnustjóri látinn taka pokann sinn í haust eftir skelfilega byrjun liðsins í deildinni - byrjun sem þýðir að liðið á nú enga möguleika á að blanda sér í baráttuna um sæti í Meistaradeildinni. Tottenham hefur aðeins tvívegis unnið útileik á móti stórliðunum fjórum frá stofnun úrvalsdeildarinnar og komu báðir sigrar árið 1993. Annar sigurinn var sigur á Arsenal á Highbury þá um vorið, en þá hvíldi Arsenal reyndar flesta byrjunarliðsmenn sína fyrir úrslitaleikinn í bikarnum. Hinn útisigurinn var 2-1 sigur á Liverpool á Anfield þar sem Teddy Sheringham skoraði bæði mörk Tottenham og tryggði því sigur eftir að liðið hafði lent undir 1-0. Síðan þá hefur útileikur við þau stóru verið tómur höfuðverkur fyrir Tottenham - sem hefur ekki unnið einn einasta af síðustu 58 útileikjum sínum gegn þeim stóru. Aldrei hefur þó gengið verið jafn skelfilegt og á allra síðustu árum, þar sem Tottenham hefur aðeins náð í 1 stig af 21 mögulegu á útivelli í þessum leikjum.
Enski boltinn Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Sjá meira