Viðskipti innlent

Stofna eignarhaldsfélag

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Nýja Kaupþing stofnar fjárfestingar- og fasteignafélag til að halda utan um eignir sem bætast kunna í safn bankans á næstu mánuðum vegna erfiðleika í rekstri stærri fyrirtækja sem eru í viðskiptum við bankann.

„Stofnun félaganna er í samræmi við tilmæli ríkisstjórnarinnar til bankanna um stofnun sérstakra eignarumsýslufélaga,“ segir í tilkynningu bankans.

Í gær ákvað Kaupþing jafnframt að auglýsa eftir umboðsmanni viðskiptavina, sem skuli vera óháður og starfa í umboði bankans.

Staðan er í samræmi við tillögur vinnuhóps á vegum ríkisstjórnarinnar. Umboðsmaðurinn á meðal annars að gæta þess að bankinn mismuni ekki viðskiptavinum með óeðlilegum hætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×