Viðskipti erlent

Yfirmaður hjá UBS bankanum rekinn

MYND/AP

Svissneski bankinn UBS AG rak í gær David Shulman yfirmann verðbréfa og skuldabréfa í Bandaríkjunum, að sögn aðila sem þekkja til.

Það er The Wall Street Journal sem greinir frá þessu í dag.

Brottreksturinn kemur í kjölfar rannsóknar á bankanum sem hefur leitt inn í deild Shulmans en hann sá einnig um uppboðsdeild bankans.

Ekki alls fyrir löngu fór bandaríska dómsmálaráðuneytið fram á að alríkisdómari heimilaði skattayfirvöldum í landinu að fá upplýsingar um bankainnistæður bandarískra ríkisborgara í Sviss.

Skattayfirvöld vilja rannsaka hvort einhverjir bandarískir ríkisborgara skjóti undan fjármunum og geymi þá inn á svissneskum bankareikningum m.a í UBS AG bankanum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×