Enski boltinn

Arbeloa gerir sér vonir um tvennuna

Elvar Geir Magnússon skrifar

Alvaro Arbeloa, bakvörður Liverpool, vonast til að liðið nái að taka tvennuna á þessu tímabili og sigra bæði ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu.

Liverpool er jafnt Chelsea á toppi deildarinnar og getur með sigri gegn Marseille á morgun tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Það er mjög erfitt að vera í baráttunni bæði í úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni. En ég tel okkur hafa það sem þarf. Á síðustu árum höfum við ekki verið í mjög góðri stöðu í deildinni og einbeiting okkar farið í Evrópukeppnina," segir Arbeloa. „Við erum núna með reynsluna sem þarf til að höndla það að berjast um titilinn í báðum keppnum. Við viljum vera með í baráttunni allt til loka."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×