Viðskipti innlent

Lánshæfismat ÍLS lækkað með neikvæðum horfum

Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í erlendri mynt í 'BBB-' úr 'BBB'. Horfur eru neikvæðar.

Í tilkynningu um málið segir að lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum var staðfest 'BBB'. Horfur eru neikvæðar. Þá voru einkunnir fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum og erlendri mynt staðfestar, 'A-3'.

Lækkun á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar lækkunar á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×