Frjálsi Fjárfestingarbankinn þvingar fyrirtæki með myntkörfulán 3. desember 2008 18:45
Frjálsi Fjárfestingarbankinn þvingar fyrirtæki sem eru í viðskiptum við bankann með myntkörfulán á gjalddaga, til að skuldbreyta lánunum í íslenskar krónur. Fréttastofu er kunnugt um á annan tug byggingaverktaka sem horfa fram á gjaldþrot vegna þessa. Flestir þeir aðilar sem fréttastofu er kunnugt um að Frjálsi fjárfestingabankinn hafi stillt upp við vegg með þessum hætti hafa enn ekki skrifað undir skuldbreytingu á lánum. Dæmi eru um að lánsupphæð hafi tvöfaldast á einu ári vegna gengis krónunnar sem bankinn miðar jú við, þegar fyrirtækin eru krafin um að breyta þeim í íslenskar krónur til að framlengja í láninu. Verktakarnir hafa margir hverjir hundruð milljóna kröfu skráða í einkabanka sínum sem gjaldfallna skuld. Enginn þeirra fékkst í viðtal af ótta við frekari aðgerðir af hálfu Frjálsa fjárfestingabankans. Þeir segja þennan gjörning bankans gera það að verkum að nær öll þessi fyrirtæki eigi sér ekki viðreisnar von. Fyrirtæki sem stóðu þokkalega fyrir hrun bankanna verða einfaldlega gjaldþrota Öll hafa þau starfmenn og undirverktaka á sínum snærum og margfeldisáhrifin eru því gríðarleg. Verkefnaskortur og atvinnuleysi blasa við hátt á annað hundrað manns hjá fyrirtæki sem hefur tíu undirverktaka. Byggingaverktakarnir biðla til ríkisvaldsins að koma í veg fyrir þessa aftöku á fjölda fyrirtækjum og segja einu skynsamlegu aðgerðina að bíða, í von um betra gengi krónunnar líkt og ríkisbankarnir hafi gert fyrir sína viðskiptavini meðan þessi mikili órói og óvissa er í efnahgsmálum. Þær upplýsingar fengust hjá Frjálsa fjárfestingabankanum að þar sem ekkert erlent fjármagn sé fáanlegt komi framlenging erlendra lána ekki til greina. Lán þessara viðskiptavina bankans þurfi því gjaldfella og umreikna í íslenskar krónur.
Mest lesið Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent Telur yfir milljarð á dag í húfi Viðskipti innlent Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Viðskipti innlent Gengið aldrei verið lægra Viðskipti innlent Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Viðskipti innlent Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Sjá meira
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent