Seðlabankinn setur krónuna á flot að nýju 3. desember 2008 16:25
Seðlabanki Íslands mun setja krónuna á flot að nýju á morgun en þá hefst aftur millibankamarkaður með gjaldeyri hérlendis. Seðlabankinn hefur sett reglur um gjaldeyrismarkað að höfðu samráði við fjármálafyrirtæki. Reglurnar taka gildi á morgun, fimmtudaginn 4. desember 2008. Í þeim er gert ráð fyrir að fjármálafyrirtæki gerist viðskiptavakar með gjaldeyri. Skilyrði um fjárhæðir og tíðni tilboða eru vægari en þau sem viðskiptavakar þurftu áður að uppfylla á millibankamarkaði. Er það bæði vegna þess að burðir þeirra til umfangsmikilla viðskipta eru minni nú og einnig er talið æskilegt að fleiri fjármálafyrirtæki verði viðskiptavakar en bankarnir þrír sem sinntu því hlutverki til skamms tíma. Í fyrstu verða viðskiptavakarnir þrír, þ.e. NBI, Nýi Glitnir og Nýja Kaupþing, en þess er vænst að þeim fjölgi. Í tilkynningu frá bankanum segir að undanfarnar vikur hefur verið stuðst við bráðabirgðaskipan gjaldeyrisviðskipta milli fjármálafyrirtækja á svonefndum tilboðsmarkaði Seðlabanka Íslands. Seðlabankinn hefur nánast verið eini seljandi gjaldeyris á þeim markaði. Gengið hefur mótast af kauptilboðum annarra og ákvörðun Seðlabankans hverju sinni. Ný skipan verður tekin upp á morgun. Áhersla verður lögð á að skapa eins virkan markað og eðlilega verðmyndun og kostur er. Til þess þarf góða umgjörð og gagnsæ viðskipti. Gengi krónunnar verður að ráðast af framboði og eftirspurn á markaði en ekki með sölu á gjaldeyri úr forða Seðlabankans. Hin nýja skipan stuðlar að eðlilegri þróun. Þátttaka Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði er ekki útilokuð á næstunni. Komi til hennar mun hún miða að því að draga úr óhóflegum sveiflum en ekki að styðja eitthvert ákveðið gengi. Framfarir á skipan gjaldeyrismála byggjast á því að gjaldeyrir sem útflutningsgreinar afla skili sér til fjármálafyrirtækja og þau eigi viðskipti sín á milli á skipulögðum markaði. Eins og fram kom í stefnuyfirlýsingu bankastjórnar Seðlabankans 28. nóvember sl. er raungengi krónunnar nú mjög lágt. Snarpur viðsnúningur á viðskiptum við útlönd, aðhaldssöm peningastefna og reglurnar sem gildi tóku síðastliðinn föstudag eftir að Alþingi hafði breytt lögum um gjaldeyrismál er allt til þess fallið að styðja við gengi krónunnar.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira