Krefjast upplýsinga um peningamarkaðssjóði fyrir dómstólum 3. desember 2008 09:22 Jóhann Hafstein hefur lagt fram beiðni til Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem óskað er eftir skýrslutökum vegna peningamarkaðssjóða Landsbankans.
Hópur fyrrum eigenda hlutdeildarskírteina í peningamarkaðssjóði Landsbankans krefst upplýsinga um fjárfestingar sjóðsins vegna þeirrar miklu skerðingar sem varð á eign þeirra þegar sjóðnum var slitið. Þegar eigendur fengu greitt úr sjóðnum fegnu þeir einungis tæp 69% af eigum sínum greiddar til baka. Lögmaður þessara aðila, Jóhann H. Hafstein, hjá ERGO lögmönnum, lagði í gær fram beiðni til Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem óskað er eftir skýrslutökum og að lögð verði fram gögn sem geti skýrt fjárfestinar sjóðsins og hvort þær hafi farið á svig við kunngerða fjárfestingarstefnu hans og lög um fjárfestingarsjóði. „Ég tel fullvíst að fallist verði á öll atriði beiðninnar. Ég er þeirrar skoðunar að þeir sem áttu hlutdeildarskírteini í peningamarkaðssjóði eigi ótvíræðan rétt á upplýsingum um fjárfestingar sjóðsins enda áttu þeir beina aðild að honum sem eigendur hlutdeildarskírteina. Vegna þessa er hæpið að röksemdir sem lúta að bankaleynd eigi við í tilviki peningamarkaðssjóða," segir Jóhann. Jóhann vísar sérstaklega til þess að forsvarsmenn Landsvaka hf., sem er dótturfélag Landsbankans og rak sjóðinn, hafi ekki svarað fyrirspurnum hans um fjárfestingar sjóðsins og ójóst sé hvaða eignir sjóðurinn átti. Því sé nauðugur sá kostur að senda slíka beiðni til héraðsdóms. Því sé um að ræða öflun sönnunargagna áður en dómsmál sé höfðað. „Mikilvægi þessara upplýsinga lýtur einkum að skoðun á réttarstöðu þessara aðila og á hvaða málsástæðum hugsanleg dómsmál kunna að verða reist" segir Jóhann að lokum.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira