Tevez fór hamförum í sigri United 3. desember 2008 22:00 Carlos Tevez var stórkostlegur í kvöld AFP
Argentínumaðurinn Carlos Tevez minnti heldur betur á sig í liði Manchester United í kvöld þegar hann átti þátt í öllum fimm mörkunum í 5-3 sigri liðsins á Blackburn í deildabikarnum. Tevez hefur þurft að dúsa mikið á varamannabekknum hjá liðinu að undanförnu, en hann nýtti sér fjarveru þeirra Wayne Rooney og Dimitar Berbatov með áberandi hætti í kvöld. Ekki liggur ljóst fyrir hvort Tevez skoraði þrjú eða fjögur mörk í leiknum, en talið er að fyrsta markið sem hann vildi eigna sér hafi verið sjálfsmark. Tvö af mörkunum sem Tevez skoraði voru gullfalleg, en hann lagði auk þess upp eitt mark fyrir Nani. United náði 2-0 forystu áður en Benni McCarthy náði að minnka muninn fyrir Blackburn, en tvö mörk frá Teves komu United í 4-1. Mörk frá Matt Derbyshire og McCarthy náðu svo að hleypa lífi í leikinn á síðustu mínútunum, en Tevez kláraði dæmið með fimmta marki United í uppbótartíma. Paul Scholes kom inn sem varamaður og spilaði sinn fyrsta leik með United síðan í september, en hann hafði átt við meiðsli að stríða. Aðeins tæplega 54,000 áhorfendur lögðu leið sína á Old Trafford í kvöld. Tottenham vann tilþrifalítinn 2-1 útisigur á B-deildarliðinu Watford fyrir framan 16,500 áhorfendur í hinum leiknum í kvöld. Roman Pavlyuchenko (víti) og varamaðurinn Darren Bent skoruðu mörk liðsins eftir að það hafði lent undir í leiknum. Það eru því Manchester United, Tottenham, Burnley og Derby sem eru komin áfram í undanúrslit keppninnar. Dregið verður í undanúrslitin á laugardaginn.
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira