Viðskipti innlent

Bakkavör toppaði daginn

Ágúst og Lýður Guðmundssynir, stofnendur og stærstu hluthafar Bakkavarar.
Ágúst og Lýður Guðmundssynir, stofnendur og stærstu hluthafar Bakkavarar. Mynd/GVA

Gengi hlutabréfa í Bakkavör stökk upp um 17,15 prósent í 39 viðskiptum upp á 7,5 milljónir króna í Kauphöllinni í dag. Þetta er langmesta hækkun dagsins.

Gengi bréfa í Bakkavör snerti lægst tvær krónur á hlut fyrir hálfum mánuði en situr nú í 3,2 krónum. Það jafngildir 60 prósenta hækkun.

Á eftir fylgdi Atorka, sem hækkaði um fimm prósent, Century Aluminum, sem hækkaði um 3,54 prósent, Össur sem hækkaði um 1,87 prósent og Færeyjabanki, en gengi bréfa í félaginu hækkaði um 1,54 prósent í dag. Þá hækkaði gengi bréfa í Eimskipafélaginu um 0,76 prósent.

Á sama tíma féll gengi bréfa í Atlantic Petroleum um 5,34 prósent og í Marel Food Systems um 0,13 prósent.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,66 prósent og endaði í 639 stigum.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×