Kaupþing í Lúxemborg seldur til Líbýu 7. desember 2008 18:28
Líbýskur fjárfestingarbanki í ríkiseign mun eignast Kaupþing í Lúxemborg í næstu viku. Kaupverðið er ekki hátt en fjárfestingarbankinn mun sjá til þess að staðið verður við greiðslur á innistæðum sparifjáreigenda hjá Kaupþingi í Lúxemborg, Sviss og Belgíu. Við greindum frá því í fréttum okkar fyrr í vikunni að viðræður um sölu á Kaupþingi í Lúxemborg væru á viðkvæmu stigi. Fjölmörg tilboð bárust í bankann og hefur fréttastofa heimildir fyrir því að meðal þeirra sem hafi íhugað kaup á bankanum hafi verið hinn þýski Landesbank auk banka í Ísrael og Rússlandi. Mikil verðmæti felast í því að eiga bankaleyfi í Lúxemborg en um tvö ár tekur að fá tilskilin leyfi. Líbýski fjárfestingarbankinn er sá eini sem nú stendur eftir. Bankinn er í ríkiseign en Líbýa á digran olíusjóð sem hefur verið notaður til fjárfestinga. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að ætlunin hafi verið að ganga frá samningum síðasta föstudag en vegna tæknilegra atriða var því frestað þangað til í næstu viku. Kaupverðið er ekki hátt en allir samningar hafa miðast að því að forða Kaupþingi frá gjaldþroti en bankinn hefur verið í greiðslustöðvun í rúmar 8 vikur. Yfirvöld í Lúxemborg, Sviss og Belgíu hafa verið með í ráðum en fréttastofa hefur heimildir fyrir því að í kaupsamningnum felist samkomulag um að staðið verði við greiðslur á innistæðum sparifjáreigenda í þessum þremur löndum. Því hefur málið verið tæknilega flókið en nú virðast samningar vera að nást. Samkvæmt heimildum koma nöfn írönsku bræðranna Vincents og Roberts Tchenguiz sem hafa verið í umfangsmiklum viðskiptum við Kaupþing hér á landi ekki fram í kauptilboðinu.Robert á sæti í stjórn Existu og á um fjögurra prósenta hlut í félaginu en bræðurnir tengjast einnig Libýu í gegnum fjárfestingar sínar. Þá kemur nafn Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, ekki heldur fram í kauptilboðinu.
Mest lesið Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent Telur yfir milljarð á dag í húfi Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Gengið aldrei verið lægra Viðskipti innlent Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Viðskipti innlent Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Viðskipti innlent Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Sjá meira
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent