Eimskip sendir frá sér afkomuviðvörun 15. desember 2008 17:09
Eimskipafélag Íslands hefur sent frá sér afkomuviðvörun afkomuviðvörun vegna fyrirséðrar gjaldfærslu á 4. ársfjórðungi. Ábyrgð Eimskips vegna XL flugfélagsins verður gjaldfærð. Í september tilkynnti Eimskip að ábyrgð myndi falla á félagið vegna gjaldþrots XL Leisure í Englandi, að fjárhæð um 207 milljónir Evra. ,,Nokkur óvissa hefur verið um kröfuna eftir að Samson eignarhaldsfélag ehf. var úrskurðað gjaldþrota. Eimskip mun færa kröfuna til gjalda á fjórða ársfjórðungi en félagið mun jafnframt vinna að því að ná samkomulagi um kröfuna við eiganda hennar," segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Auk gjaldfærslu vegna XL ábyrgðar eru áætlaðar gjaldfærslur vegna virðisrýrnunar eigna, fyrst og fremst vegna viðskiptavildar á frystigeymslustarfsemi á meginlandi Evrópu, sem nú er í sölumeðferð. Einnig hafa fallið á Eimskip ábyrgðir vegna leigugreiðslna XL flugvéla, eins og kom fram í ársreikningi félagsins. Fyrirtækið segir að fjárhæðir ábyrgðanna liggja ekki enn fyrir en viðræður við kröfuhafa standa yfir. ,,Þar sem endurskoðun á virðisrýrnunarprófum og ársreikningi félagsins er ekki lokið er enn óljóst hver heildargjaldfærsla vegna virðisrýrnunar mun verða á fjórða ársfjórðungi. Ljóst er þó að hún mun ganga stórlega á eigið fé félagsins og munar þar mest um gjaldfærslu vegna XL ábyrgðar." Eimskipafélag Íslands hyggst vinna að fjárhagslegri endurskipulagningu með innlendum og erlendum ráðgjöfum og er ráðgert að hanni ljúki á fyrri helmingin næsta árs. ,,Lögð hefur verið áhersla á að selja hluta erlendra eigna sem ekki tengjast kjarnastarfsemi félagsins, með það að markmiði að greiða niður skuldir og létta á fjármagnskostnaði. Eimskip er í viðræðum við helstu lánveitendur sína um frestun vaxtagreiðslna og afborgana lána til að vernda lausafjárstöðu félagsins á meðan á söluferli eigna stendur yfir. Viðbrögð lánveitenda hafa almennt verið góð. Þrátt fyrir að efnahagsástandið á Íslandi hafi verið mjög erfitt hefur Eimskip tekist að tryggja lausafjárstöðu félagsins." Grunnrekstur félagsins gengur vel þrátt fyrir erfiða skuldastöðu félagsins og erfið skilyrði á fjármálamarkaði. ,,Vel hefur gengið að aðlaga rekstur félagsins að þeim samdrætti sem hefur verið í flutningum til Íslands. Félagið hefur á undanförnum vikum fækkað skipum í rekstri tengdum Íslandi úr 11 í átta, auk þess að gripið var til uppsagna og launalækkana ásamt öðrum hagræðingaraðgerðum. Áætlað er að þessar aðgerðir skili um 2,4 milljarða króna sparnaði á ári. Lausafjárstaðan er góð og grunnrekstur Eimskips er traustur. Félagið mun áfram veita viðskiptavinum félagsins trausta og góða þjónustu."
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira