Seðlabanki svarar ekki fullyrðingum Björgólfs Thors 27. október 2008 12:00
Engin svör fást í Seðlabankanum við fullyrðingum Björgólfs Thors Björgólfssonar um að bankinn hefði getað afstýrt óvissunni með Icesavereikninganna og milliríkjadeilunni sem hún hefur skapað. Fréttastofa hefur í dag leitað viðbragða bankastjóra Seðlabanka Íslands við því sem kom fram í útdrætti úr viðtali Kompáss við Björgólf Thor Björgólfsson sem sýnt var í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Þar sagði Björgólfur að Seðlabankinn hefði getað afstýrt óvisunni sem ríkir um Icesave reikningana í Bretlandi og milliríkjadeilunni sem upp er komin vegna þeirra. Hann segir að bresk yfirvöld hafi boðist til að taka yfir alla Icesave reikninga degi áður en neyðarlög voru sett gegn því að landsbankinn greiddi 200 milljón punda tryggingu. Með því hefðu ábyrgðir vegna innistæðna reikninganna fallið á breska ríkið en ekki það íslenska. Bankinn bað því Seðlabankann um lán fyrir þessari tryggingu svo af þessu gætu orðið. Að sögn Björgólfs voru bestu mögulegu veð lögð fram fyrir þessu láni. Seðlabankinn hafnaði hins vegar beiðninni og deilan um Icesave reikningana hefur síðan þá orðið að harðri milliríkjadeilu á milli Breta og Íslendinga. Í Seðlabankanum í dag fengust þau svör að enginn þriggja seðlabankastjóranna væri til viðtals vegna málsins. Hefðin væri sú að tjá sig ekki um viðskipti eða samninga af þessu tagi. Ítarlegt viðtal verður við Björgólf Thor Björgófsson í fréttaskýringaþættinum Kompási á Stöð 2 í kvöld. Þátturinn er í opinni dagskrá.
Mest lesið Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Sjá meira