Gengi krónunnar lækkaði um 11% á tíu dögum 19. desember 2008 12:27
Gengi krónu hefur lækkað um ríflega 11% undanfarna tíu daga. Enn er þó krónan u.þ.b. 14% sterkari gagnvart helstu gjaldmiðlum en hún var þegar hin takmarkaða endurfleyting hennar hófst að morgni 4. desember síðastliðins. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að evran kostar nú ríflega 170 kr. en stóð í 188 kr. í upphafi mánaðarins og Bandaríkjadollar hefur lækkað úr rúmum 147 kr. í 120 kr. það sem af er desember. Í dag hefur krónan nánast staðið í stað gagnvart körfu helstu gjaldmiðla, styrkst lítillega gagnvart evru en lækkað að sama skapi á móti dollaranum. Gengi krónu gaf töluvert eftir í gær. Lækkaði krónan um 5% gagnvart evru. Virðist sem markaðsaðilar hafi túlkað orð Poul Thomsen, sem fer fyrir sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gagnvart Íslandi, um að stutt væri í vaxtalækkun og afléttingu hafta á þann veg að búast mætti við útstreymi gjaldeyris fyrr en síðar. Gjaldeyrismarkaður er mjög grunnur og lítið þarf til að framboð af gjaldeyri hverfi tímabundið. Markaðurinn er því viðkvæmur. Vera má að þátttakendur á markaði hafi lesið full mikið út úr orðum Thomsen, enda voru þau í stórum dráttum í takti við fram komna aðgerðaráætlun stjórnvalda og IMF um að aflétta gjaldeyrishöftum og lækka vexti um leið og nægilegur stöðugleiki væri kominn á gjaldeyrismarkað.Að mati greiningarinnar er lykilatriði hér að höftunum verði ekki aflétt fyrr en stöðugleikinn á gjaldeyrismarkaði hefur verið tryggður. Ein forsenda fyrir slíku og þar með afléttingu haftanna er að sett sé fram trúverðug framtíðarsýn á fyrirkomulag peninga- og gjaldmiðilsmála Íslands.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira