Íslensk hugbúnaðarlausn seld fyrir 350 miljónir kr. 19. desember 2008 09:37
Crossroads Partner, Inc. og Annata h.f. hafa gengið frá samningi um sölu á Microsoft Dynamics AX hugbúnaðarkerfinu fyrir um 350 miljónir íslenskra króna til tveggja óskyldra fyrirtækja í Bandaríkjunum og Kólumbíu. Hugbúnaðarkerfið er viðskiptakerfi sem vinnur með Microsoft forritum og er sérsniðið að fyrirtækjum í bílaiðnaði. Fyrri samningurinn var gerður við Navitrans í Kólumbíu og hljóðar uppá 150 milljónir íslenskra króna. Navitrans er stærsta umboðsfyrirtæki Navistar í heimi. Seinni samningurinn var gerður við Rodman LLC frá Dallas í Texas uppá 200 milljónir íslenskra króna. Rodman LLC er eitt stærsta verktakafyrirtækið í Texas með yfir 1600 starfsmenn. "Rodman valdi IDMS fram yfir aðrar lausnir vegna skilvirkni IDMS lausnarinnar og reynslu og meðmæla annarra viðskiptavina Crossroads og Annata" segir Einar Úlfsson stjórnarformaður og stofnandi Crossroads Partner, Inc. "Annata IDMS var fyrsta IDMS lausnin sem fékk "Certified for Dynamics" viðurkenninguna frá Microsoft og það skipti sköpum í þessu samhengi". Craig Porter, stjórnaformaður Rodman segir að þegar Crossroads Partner Inc. sendi okkur fréttirnar um viðurkenninguna þá vissum við að Rodman hafði valið rétt IDMS hugbúnaðarkerfi". "Þetta er mikilvægur árangur fyrir íslenskan hugbúnaðariðnað og viðurkenningu hans á erlendum mörkuðum. ANNATA IDMS er ein besta lausnin á markaðnum umboðs og dreifiaðila á vinnuvéla og annarra farartækja. Við erum mjög ánægðir með söluna til Rodman og vitum að okkar bíða góð tækifæri í Bandaríkjunum sem er einn okkar mikilvægasti markaður" segir Jóhann Jónsson framkvæmdastjóri Annata.Crossroads Partner, Inc. var stofnað árið 2006. Crossroads Partner, Inc. eru með skrifstofur í Boston, New York, Charlotte í Norður Karólínu og Dallas í Texas. Starfsmenn Crossroads Partner hafa unnið med fyrirtækjum á borð við Avon, Chanel, Tommy Hilfiger, Esselte Office Products, Rodman LLC, Blue Man Group og International Trucks. Annata hf. er alþjóðlegt ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í innleiðingu lausna fyrir fyrirtæki. Annata h.f. er með skrifstofur í Reykjavik, Bretlandi, Danmörku, Noregi og Sviþjóð.
Mest lesið Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Sjá meira