Lífeyrissjóðurinn Stapi lækkar vexti á lánum í 4,2% 19. desember 2008 16:12
Á stjórnarfundi Stapa lífeyrissjóðs í dag var ákveðið að lækka vexti sjóðfélagalána í 4,2% frá 1. janúar n.k., en áður höfðu þeir verið lækkaðir úr 5,7% í 5,2% 1. desember sl. Jafnframt var ákveðið að setja hámark á ný lán sjóðfélaga, 10 milljónir kr, en áður ákvarðaðist hámarkið eingöngu af veðhæfi fasteignar. „Við viljum með þessu reyna að koma til móts við okkar sjóðfélaga á erfiðum tímum." segir Kári Arnór Kárason framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs í umfjöllun um málið á heimasíðu sjóðsins. „Lækkun vaxta og þar með lækkun á greiðslubyrði er að okkar mati skynsamlegasta leiðin við núverandi aðstæður. Það er okkar skoðun að mikilvægt sé bæði fyrir okkar félagsmenn og sjóðinn að sem flestir geti staðið í skilum. Aukin vanskil og dýrar innheimtuaðgerðir munu bitna bæði á sjóðnum og okkar félagsmönnum og við viljum reyna að komast hjá slíkum aðgerðum í lengstu lög. Þetta mun að sjálfsögðu ekki leysa vanda allra en er vonandi gott framlag til þess að gera framtíðina eitthvað bærilegri." Þá ákvað stjórn Stapa einnig að lækka tímabundið dráttarvexti af iðgjaldakröfum til sjóðsins. Dráttarvextir af iðgjaldakröfum verða því einungis 10% frá 1. október sl. (þegar bankahrunið varð) til 28. febrúar 2009 vegna uppgjöra sem gerð eru á þessu tímabili. Þeir sem ekki gera upp vanskil á þessu tímabili munu hins vegar greiða þá almennu dráttarvexti sem í gildi eru.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira