Laun hækkuðu um 2,2% frá fyrri ársfjórðungi 4. desember 2008 10:19
Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 1,1% að meðaltali á þriðja ársfjórðungi 2008 og laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 4,8%. Þetta þýðir hækkun launavísitölu um 2,2% á þessum tíma. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 9,4%, þar af um 8,9% á almennum vinnumarkaði og um 10,7% hjá opinberum starfsmönnum, eftir því sem fram kemur á vef Hagstofunnar.Laun verkafólks á almennum markaði hækka um 11% á einu ári Frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun verkafólks mest eða um 1,5% en laun tækna og sérmenntaðs starfsfólks hækkuðu minnst, um 0,8%. Laun verkafólks hækkuðu jafnframt mest frá fyrra ári eða um 11,0% en laun stjórnenda hækkuðu minnst, 6,8%.Mestar launahækkanir í byggingarstarfsemi en minnstar í verslun Hækkun launa eftir atvinnugrein mældist mest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 2,2% frá fyrri ársfjórðungi en minnst mældist hækkun launa í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu 0,6%. Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun jafnframt mest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða um 11,6% en minnst mældist hækkunin í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu, 8,1%.Helstu hækkanir eru samkvæmt kjarasamningumÍ framhaldi af gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, sem að mestu leyti komu til framkvæmda á fyrsta og öðrum ársfjórðungi, komu kjarasamningar fjölmennra hópa opinberra starfsmanna til framkvæmda á þeim þriðja.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira