Viðskipti innlent

Álag vegna skila á vsk fellt niður tímabundið

Fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að fella tímabundið niður niður álag vegna skila á virðisaukaskatti.

Í tilkynningu um málið segir að vegna þeirra truflana sem orðið hafa á bankastarfsemi hér á landi og áhrifa þess á atvinnulífið telur ráðuneytið að gildar ástæður séu til að beita heimild í lögum, til tímabundinnar niðurfellingar álags vegna skila á virðisaukaskatti fyrir uppgjörstímabilið september og október 2008.

Hefur ráðuneytið í dag beint þeim tilmælum til skattstjóra að fellt verði tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti sem á gjalddaga er 5. desember 2008 og gildi sú niðurfelling í eina viku eða til 12. desember 2008.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×