Viðskipti innlent

Meira en helmingi færri kaupsamningar miðað við í fyrra

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 19. desember til og með 25. desember 2008 var 34, en í sömu viku í fyrra var 78 kaupsamningum þinglýst. Þetta þýðir fækkun um meira en helming. Heildarveltan var 806 milljónir króna og meðalupphæð á samning 23,7 milljónir króna. Í þessari viku í fyrra var heildarveltan hins vegar 2.500 milljónir króna og meðalupphæðin 32 milljónir króna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×