West Ham náði stigi á Brúnni 14. desember 2008 17:55 Craig Bellamy skoraði fyrir West Ham AFP
Stórliðin fjögur á Englandi máttu öll sætta sig við jafntefli í úrvalsdeildinni um helgina. Gianfranco Zola mætti með lærisveina sína í West Ham á gamla heimavöllinn í kvöld og náði 1-1 jafntefli gegn Chelsea. Chelsea mistókst fyrir vikið að skjótast aftur á toppinn í úrvalsdeildinni og hefur hlotið 37 stig. Liðið er í öðru sæti á eftir Liverpool sem hefur 38 stig. West Ham náði í mikilvægt stig í botnbaráttunni og ekki veitti af eftir lélegt gengi að undanförnu. Það var vandræðagemsinn Craig Bellamy sem kom West Ham yfir í leiknum en leikmenn Chelsea vildu reyndar meina að Mark Noble hefði handleikið knöttinn í aðdraganda marksins. Didier Drogba var ekki í byrjunarliði Chelsea í kvöld en leikur liðsins hresstist nokkuð þegar hann kom inn sem varamaður. Það var svo Nicolas Anelka sem jafnaði metin fyrir Chelsea. Frank Lampard heimtaði vítaspyrnu undir lokin þegar hann var felldur af Lucas Neill en fékk ekkert fyrir sinn snúð. Carlton Cole fékk líka tækifæri til að stela stigunum fyrir West Ham gegn sínum gömlu félögum, en brást bogalistin. Chelsea var meira með boltann í leiknum og hafði nokkra yfirburði, en lærisveinar Luiz Scolari eru eflaust svekktir að hafa misnotað tækifærið til að komast á toppinn. Chelsea 1 - 1 West Ham 0-1 C. Bellamy ('33) 1-1 N. Anelka ('51)
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira