Takið bílnúmerin af og sparið 14. desember 2008 09:00 „Þetta er mitt innlegg í allt krepputalið,“ segir bílasali um sparnaðartillögur sínar fyrir seljendur notaðra bíla. MYND/Fréttablaðið/GVA „
Það er fáránlegt að fólk láti bílana standa á sölu á fullri tryggingu og bifreiðagjöldum,“ segir Trausti Jónsson, löggiltur bifreiðasali í Bílfangi Trausti telur það vera bæði hag bíleigenda og bílasala að bílar í sölumeðferð séu teknir af númerum. Að sögn Trausta er algengt um þessar mundir að bílar standi um það bil þrjá mánuði á sölu. Í því tilfelli sé hægt að spara allt að 40 til 50 þúsund krónur í bifreiðagjöld og tryggingar með því að skila númerunum inn til Umferðarstofu. „Á meðan gætu bílasalarnir gegn vægu gjaldi lagt til sérstök rauð númer sem eru til reynsluaksturs og eru með kaskótryggingu,“ segir hann. Trausti viðurkennir að það þyki ef til vill ekki sölulegt ef bílar eru númerslausir. Þess vegna þurfi bílaumboð og bílasölur að ná víðtækri samstöðu um breytinguna að erlendri fyrirmynd en þar tíðkist ekki að bílar séu á númerum á sölu. „Þannig gætu seljendurnir sparað og strangari reglur myndu gilda um reynsluakstur en nú viðgengst. Menn gætu þá kannski fengið að prófa bílana í tvær eða þrjár mínútur og farið síðan með þá í ástandsskoðun ef þeir hafa áhuga á að kaupa. Þetta er vissulega bæði gerlegt og mögulegt.“ - gar
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira