Viðskipti innlent

Erlendir kröfuhafar fái hlutafé í nýju bönkunum

Geir Haarde forsætisráðherra segir að eitt af þeim atriðum sem ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun var að erlendir kröfuhafar gæti breytt kröfum sínum í hlutafé í nýju bönkunum þremur.

Þetta kom fram á blaðamannafundi Geirs og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra sem nú stendur yfir. Þar kynna þau aðgerðir stjórnvalda til handa fyrirtækjum landsins en þær eru í tólf liðum.

Geir segir, hvað hlutafjárkaup erlendra lánadrottna varðar, að slíkt myndi auðvelda endurfjármögnun bankanna og létta undir með þeim. Einnig myndi slík eignaraðild stuðla að því að byggja upp traust og trúverðugleika á íslensku efnahagslífi fyrr en ella yrði.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×