Krónan yfir 250 stig í fyrsta sinn Óli Kristán Ármannsson skrifar 2. desember 2008 06:00 Við hafnarfjarðarhöfn Greining Glitnis segir fyrirséð að afgangsgjaldeyrir af viðskiptum við útlönd vindi ofan af hættunni á hraðri og mikilli gengislækkun krónu. Fréttablaðið/GVA
Gengisvísitala krónunnar veiktist um 4,04 prósent í gær frá fyrra viðskiptadegi. Vísitalan fór í fyrsta sinn yfir 250 stig, en sérfræðingar höfðu spáð nokkurri veikingu eftir að hún yrði sett á flot á markaði á ný. Við lok viðskipta á föstudag var gengisvísitala krónunnar 242,3, en 252,1 stig í gær. Lög um höft á gjaldeyrismarkaði sem samþykkt voru aðfaranótt föstudagsins síðasta stemma stigu við mjög örri lækkun krónunnar, að mati Greiningar Glitnis. „Þó svo að höft séu á fjármagnsflutningum er krónan á floti. Hið nýja gjaldeyriskerfi sem komið var upp í lok síðustu viku gerir það að verkum að verð krónunnar ákvarðast á markaði þar sem gjaldeyristekjur og -gjöld vegna vöru- og þjónustuviðskipta ákvarða gengi krónunnar að viðbættum gjaldeyrishreyfingum vegna vaxta, verðbóta, arðs, hagnaðarhluta af fjárfestingum og samningsbundinna afborgana,“ segir í umfjöllun Greiningar. Í nýju umhverfi gjaldeyrisviðskipta hér á landi hefur flot krónunnar hins vegar verið nefnt „hálfflot“, eða flot með ankeri. Samkvæmt heimildum blaðsins liggja litlar upplýsingar fyrir um magn og eðli þeirra gjaldeyrisviðskipta sem átt hafa sér stað síðan á föstudag, en þær eru á forræði Seðlabankans. Þó er talið að um frekar smáar færslur sé að ræða og að heildarvelta krónunnar frá því að hún var sett á flot sé innan við milljarður. Í gjaldeyrisviðskiptum gærdagsins slagaði gengi evrunnar í 190 krónur, Bandaríkjadalur daðraði við 150 krónur og verð dönsku krónunnar fór yfir 25 íslenskar. Í umfjöllun Greiningar Glitnis kemur jafnframt fram að fyrirséð sé að á næstunni verði gjaldeyristekjur vegna vöru- og þjónustuviðskipta við útlönd meiri en gjöld. „Ef allar gjaldeyristekjur skila sér inn á markaðinn með þeirri skilaskyldu sem fest hefur verið í lög mun smátt og smátt verða til umframgjaldeyrir í þessum viðskiptum.“ Mat greiningardeildarinnar er að hluti umframgjaldeyrisins komi til með að fara í þau fjármagnsviðskipti sem heimil séu. „Hitt verður hægt að nýta til að selja erlendum aðilum og losa þá þannig út úr krónustöðum sínum. Þannig verður hægt að vinda ofan af hættunni á hraðri og mikilli gengislækkun krónunnar í því fullkomna floti sem stefnt er að.“
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira