Lögbann í Bandaríkjunum kom Actavis ekki á óvart 18. nóvember 2008 10:15
Bandaríska Matvæla- og lyfjastofnunin (FDA) hefur farið fram á að sett verði lögbann á framleiðslu í lyfjaverksmiðju Actavis Totowa í New Jersey. Actavis lítur á þetta sem skref í löngu ferli, þar sem fyrirtækið hefur unnið og mun áfram vinna með FDA að lausn. Í yfirlýsingu um málið frá Actavis segir að þetta skref, sem kom Actavis ekki á óvart, er beint framhald af sama máli og greint var frá í byrjun maí. Actavis í Bandaríkjunum innkallaði þá hjartalyfið Digitek sem framleitt var í umræddri verksmiðju. Í kjölfarið voru öll lyf úr verksmiðjunni innkölluð, eins og sagt var frá í ágúst til að gæta fyllsta öryggis. Unnið hefur verið að því síðan í maí að yfirfara öll framleiðsluferli og gæðamál í verksmiðjunni. Stjórnendur fyrirtækisins eru sannfærðir um að verksmiðjan standist skoðun FDA og að kröfur sem gerðar eru til ferla- og gæðamála hjá félaginu séu umfram það sem FDA fer framá. „Við höfum unnið markvisst að því að lagfæra það sem betur mátti fara í Totowa, og höfum verið í reglulegum samskiptum við FDA, almenning, starfsfólk okkar og viðskiptavini. Við fórum þess á leit við FDA í síðasta mánuði að gerð yrði úttekt á verksmiðjunni og þeim breytingum sem gerðar hafa verið í henni," segir John LaRocca, lögfræðingur Actavis í Bandaríkjunum. "FDA hefur til þessa ekki orðið við því. Actavis tekur þessi mál alvarlega, og mun sem fyrr leggja mikla áherslu á gæði og öryggi í framleiðslunni. Við vonumst til að málið leysist með farsælum hætti hið fyrsta." Þetta skref hefur ekki áhrif á framleiðslu í öðrum lyfjaverksmiðjum Actavis, hvorki í Bandaríkjunum né í öðrum löndum. Lyf Actavis í Bandaríkjunum eru ekki flutt inn til Íslands og því eru áhrifin á Íslandsmarkaði engin.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira