Viðskipti innlent

Hvalfjarðarsveit tapaði 15 milljónum á Kaupþingi

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar í fyrradag kom fram að sveitarfélagið tapaði 15 milljónum króna á því að hafa geymt fjármuni á Peningamarkaðssjóði Kaupþings þegar bankinn varð gjaldþrota.

Skessuhorn.is fjallar um málið og vísar í bókun sveitarstjórnar þar sem segir: "Hvalfjarðarsveit fékk ráðleggingar um að bestu ávöxtunarkjör væru á peningamarkaðsreikningum. Farið var eftir þeim ráðum og voru lagðar 70 milljónir árið 2007 og 20 milljónir árið 2008 á peningamarkaðsreikning hjá Kaupþingi hf. Við slit á sjóðnum vegna gjaldþrots Kaupþings fékk Hvalfjarðarsveit greitt út úr sjóðnum 85% eða 87.366.258 kr. Heildar tapið á fjárfestingunni í peningamarkaðsbréfum nemur 15.026.665 kr."

Í fréttinni segir að fyrir liggi að mörg sveitarfélög landsins, líkt og almenningur og fyrirtæki, töpuðu miklum peningum á hruni bankanna og töpuðum innistæðum á peningamarkaðssjóðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×