Ellefu milljarða Anelka 11. janúar 2008 19:49 Nicolas Anelka hefur losað mikið fé á ferlinum NordicPhotos/GettyImages
Franski framherjinn Nicolas Anelka er orðinn dýrasti knattspyrnumaður sögunnar í kjölfar þess að hann gekk í raði Chelsea í dag fyrir 1860 milljónir króna. Enginn leikmaður hefur kostað jafn háa fjárhæð samanlagt og þessi 28 ára gamli framherji. Anelka hefur verið mjög iðinn við að skipta um félög frá því hann vær lærlingur hjá PSG í Frakklandi árið 1994 og síðan hafa ríflega 10,75 milljarðar króna skipt um hendur í kaupum og sölum á leikmanninum. Breska blaðið Daily Mail gerir í kvöld úttekt á þeim ótrúlegu fjárhæðum sem skipt hafa um eigendur á ferli Anelka. Blaðið segir að hann hafi í dag farið fram úr fyrrum heimsmetshafanum Juan Sebastian Veron, en hann hefur kostað félög sín tæpa 9,5 milljarða á ferlinum. Sú staðreynd hvað Anelka hefur verið duglegur að skipta um félög gerir það líka að verkum að hann er einn ríkasti knattspyrnumaður í heimi, því hann hefur fengið gríðarlegar fjárhæðir í undirskrifarbónusa við öll þessi félagaskipti. Það var Arsene Wenger sem keypti landa sinn fyrst til Englands árið 1997, en borgaði reyndar ekki nema um 60 milljónir króna fyrir hann. Arsenal seldi Anelka til Real Madrid fyrir hvorki meira né minna en 2,8 milljarða aðeins tveimur árum síðar og sagt er að félagið hafi borgað upp nýtt æfingasvæði með gróðanum. Aðeins innan við ári eftir að Anelka fór til Real var hann seldur aftur til uppeldisfélagsins fyrir nánast sömu upphæð og Real keypti hann, en honum gekk ekki mikið betur þar. Hann var þvínæst lánaður til Liverpool, en liðið hafði ekki áhuga á að kaupa hann. Loks var hann seldur til Manchester City fyrir 1,5 milljarð og hékk þar fram til ársins 2003. Ekki fann kappinn sig frekar hjá City en öðrum liðum á Englandi og úr varð að hann var seldur til Fenerbahce í Tyrklandi fyrir um 870 milljónir króna árið 2005. Aðeins ári síðar var Anelka orðinn leiður á Tyrklandi og afréð að snúa aftur til Bolton á tæpan milljarð árið 2006. Í dag skrifaði Anelka svo undir samning við við Chelsea sem pungaði út 1860 milljónum fyrir hann. Chelsea er fimmta félagið í úrvalsdeildinni sem Anelka leikur með á ferlinum.
Enski boltinn Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Sjá meira