Óvissan kom í veg fyrir stýrivaxtaspá Seðlabankans 18. nóvember 2008 12:27
Arnór Sighvatsson aðalhagfræðingur Seðlabankans segir bankann ekki hafa treyst sér til að leggja fram stýrivaxtaspá í síðustu Peningamálum vegna þess óvissuástands sem ríkti við spágerðina. Að mati Arnórs er ljóst að spá Seðlabankans gerir ráð fyrir hörðum samdrætti en samanburður við aðrar bankakreppur gefur góða von um jákvæða lokaútkomu þó stærðargráða áfallsins leiði væntanlega til örlítið lengri aðlögunar. Þetta kom fram í pallborðsumræðunum á fundi Viðskiptaráðs í morgun. Fjallað er um umræðurnar á vefsíðu ráðsins. Þar segir að Ingólfur Bender forstöðumaður greiningar Glitnis telur yfirstandandi niðursveiflu verða djúpa og langvarandi einkum vegna þess að skilyrði á erlendum mörkuðum eru afar erfið nú um mundir. Sagði Ingólfur ástandið verða dökkt næstu 2-3 árin, en mikilvægt væri að hafa í huga að kreppur ættu sér upphaf og endi. Nú væri mikilvægast að bregðast ekki við með eingangrun og alls ekki yfirskjóta í nýju regluverki. Hlúa þarf að menntun, frumkvæði og þeim drifkrafti sem íslenskt atvinnulíf hefur skapað með sér. Gylfi Zoega prófessor taldi það höfuðatriði að horfa fram á veginn og leita lausna í stað þess að slást innbyrðis. Til að finna lausnina þarf að skilja aðstæðurnar. Hafa þarf í huga að kreppur eru reglulegur viðburður í flestum hagkerfum og því eru aðstæðurnar hér ekkert einsdæmi. Gylfi sagði að passa þyrfti upp á að sagan endurtaki sig ekki og að nú væri algert forgangsatrðiði að forða einstaklingum frá erfiðum persónulegum áföllum og halda atvinnulífinu gangandi. Yngvi Örn Kristinsson forstöðmaður hagfræðideildar Landsbankans sagði verkefnin afar skýr; endurreisa þyrfti bankakerfið, opna gjaldeyrismarkaði, takast á við greiðsluvanda heimila og fyrirtækja, bregðast við aukinni skuldasöfnun ríkissjóðs og endurskoða peningamálastefnuna. Að hans mati væri alls ekki unnt að gera kröfu til þess að einkafyrirtæki á samkeppnismörkuðum stýri efnahagsmálum þjóðarinnar, til þess væri ríkissjóður og Seðlabankinn. Taldi hann Seðlabankann hafa ráðið yfir nægum verkfærum til að bregðast við með afgerandi hætti og nefndi hann þar vextina, lausafjárreglur og bindiskylduna. Það hefði því ekki verið nóg af hálfu Seðlabankans að beita viðvörunum um alvarleika ástandsins. Hann hefði betur beitt aðgerðum.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Sjá meira