Hildur og Gunnar Þór á leið úr stjórn SPRON 25. febrúar 2008 21:44 Hildur Petersen, stjórnarformaður SPRON. MYND/Vilhelm
Hvorki Hildur Petersen, stjórnarformaður SPRON, né Gunnar Þór Gíslason, stjórnarmaður í félaginu, bjóða sig áfram fram til stjórnarsetu í félaginu. Þetta má sjá á heimasíðu félagsins. Þar kemur fram að Ari Bergmann Einarsson, Ásgeir Baldurs og Erlendur Hjaltason gefa áfram kost á sér í stjórnina og tvær konur, þær Margrét Guðmundsdóttir og Rannveig Rist, sækjast einnig eftir sæti í stjórinni. Kosið verður í stjórnina á aðalfundi á miðvikudag. Stjórn SPRON hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að birta ekki upplýsingar um sölu stjórnarmanna á hlutum í félaginu áður en það fór á markað. Hafa Samtök fjárfesta gagnrýnt svör fyrirtækisins vegna þess. Þar hefur komið fram að SPRON hafi ekki verið heimilt að birta opinberlega upplýsingar um viðskipti stjórnarmanna „þar sem það var talið geta valdið ruglingi við hlutabréfamarkaðinn." Hildur Petersen var í hádegisviðtalinu á Stöð 2 þann 5. febrúar. Þar var hún spurð um orðróm þess efnis að hún væri á leið úr sæti stjórnarformanns. Þá sagðist Hildur ekki hafa heyrt hann en að hún myndi bjóða sig fram aftur á aðalfundi 27. febrúar. Það væri svo hluthafa að taka ákvörðun um það. Athygli vekur að Vilhjálmur Þórmundur Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, sækist eftir endurkjöri sem varamaður í stjórn.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira