Klúður lögfræðings dýrkeypt fyrir Björgólf Andri Ólafsson skrifar 19. ágúst 2008 15:07
Erfiðar deilur við kvikmyndarisann Paramount settu alvarlegt strik í reikninginn við framleiðslu og markaðssetningu myndarinnar The Perfect Holiday sem Björgólfur Thor Björgólfsson fjármagnaði að hluta. Mistökin ollu því að fresta þurfti frumsýningu myndarinnar um heilt ár. Að sögn Ásgeirs Friðgeirssonar, talsmanns Björgólfs Thors, áttu deilurnar við Paramount upptök sín í alvarlegum, lögfræðilegum mistökum sem gerð voru við undirritun samninga við kvikmyndarisann. Lögfræðingurinn sem bar ábyrgð á gerð samninganna var starfsmaður Novators og hefur honum verið sagt upp störfum. Mistök lögfræðingsins og deilurnar sem fylgdu í kljölfarið gerðu það að verkum að erfitt reyndist að afla myndinni meðbyrs og skilaði það sér í slakri aðsókn og dræmri gagnrýni. Eins og Vísir greindi frá fyrr í dag olli myndin nokkrum vonbrigðum þegar hún kom út fyrir síðustu jól. Enn er hins vegar ekki útséð með hversu stór hluti fimm milljón dollara fjárfestingar Björgólfs skilar sér. Ásgeir segir að 40 prósent fjárfestingarinnar hafi þegar skilað sér tilbaka en það sem eftir stendur er meðal annars háð sölu á DVD-diskum. The Perfect Holiday er ekki fyrsta kvikmyndin sem Björgólfur Thor hefur komið að. Hann tók til dæmis þátt í gerð Vesturportskvikmyndanna Börn og Foreldrar sem Ragnar Bragason leikstýrði og hlaut lof fyrir. Aðkoma Björgólfs að þessum verkefnum skapaði honum margvíslega reynslu og tengsl við áhrifafólk í alþjóðlega kvikmyndheiminn sem Ásgeir Friðgeirsson segir að nýtt verði til nýrra verkefna. Engir samningar liggja hins vegar fyrir um ný verkefni en ýmis áhugaverð verkefni eru í athugun.
Tengdar fréttir Björgólfur Thor tapar á 500 milljóna Hollywood fjárfestingu Ekki er enn útséð hvort fjárfesting Björgólfs Thors Björgólfssonar í bandarísku kvikmyndinni The Perfect Holiday skili sér að fullu. Þetta segir Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfs. 19. ágúst 2008 10:05 Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira
Björgólfur Thor tapar á 500 milljóna Hollywood fjárfestingu Ekki er enn útséð hvort fjárfesting Björgólfs Thors Björgólfssonar í bandarísku kvikmyndinni The Perfect Holiday skili sér að fullu. Þetta segir Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfs. 19. ágúst 2008 10:05