Enski boltinn

Kinnear stýrir Newcastle til vors

NordicPhotos/GettyImages

Joe Kinnear er búinn að skrifa undir samning við stjórn Newcastle um að stýra liðinu til loka leiktíðar. Hann hefur verið settur stjóri Newcastle síðan Kevin Keegan hætti í september.

"Ég hef haft gaman af þessu alveg síðan ég kom hingað til Newcastle," sagði Kinnear þegar ljóst varð að hann sæti í sex mánuði í viðbót hjá félaginu.

Kinnear hefur þó verið duglegur að koma sér í fréttirnar og stundum á röngum forsendum. Hann hefur tvisvar farið inn á teppi hjá aganefndinni.

Í fyrra skiptið var hann aðvaraður eftir að blóta 52 sinnum í árás á fjölmiðlamenn á blaðamannafundi en síðar fyrir að kalla dómara Mikka Mús eftir tapleik gegn Fulham.

Kinnear hefur unnið tvo leiki, gert fjögur jafntefli og tapað tveimur í þeim átta leikjum sem hann hefur stýrt liðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×