Atorka: Tap móðurfélags 6,3 milljarðar 28. nóvember 2008 22:34 Magnús Jónsson forstjóri Atorku.
Atorka Group hefur birt uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung. Ef litið er til móðurfélagsreiknings töpuðust 2,3 milljarðar á fjórðungnum efitr skatta en á fyrstu níu mánuðum ársins nam tapið 6,3 milljörðum. Tap samstæðunnar er mun meira, en á þriðja ársfjórðungi var tapið 2,7 milljarðar eftir skatta og 11,4 milljarðar fyrstu níu mánuðina. Er það rakið til veikingar krónunnar. Heildareignir móðurfélagsins voru 58,2 milljarðar í lok september og eigið fé 14,6 milljarðar. Eiginfjárhlutfall á sama tíma var 25,1 prósent. Í tilkynningu frá félaginu segir að stærsta hluta tapsins á samstæðureikningi megi rekja til veikingar krónunnar. Tekjur á fyrstu níu mánuðum ársins voru 69,9 milljarðar króna og heildareignir samstæðunnar í lok september voru 129 milljarðar króna. Eigið fé var 0,2 milljarðar í lok september. „Afkoma og starfsemi Atorku endurspeglast í móðurfélagsreikningi en ekki í samstæðureikningi," segir í tilkynningunni. „Því eru ákvarðanir teknar út frá móðurfélaginu, til að mynda gengisvarnir sem verja fjárfestingar móðurfélagsins fyrir sveiflum á gjaldeyrismarkaði en koma nú fram sem tap í samstæðureikningi við veikingu krónunnar." „Aðstæður á fjármálamörkuðum sem og efnahagsástand almennt er verulega erfitt og búist er við samdrætti í mörgum af stærstu hagkerfum heimsins," Magnús Jónsson forstjóri Atorku. „Þetta leiðir til þess að það er erfiðara en ella að spá fyrir um afkomu fyrirtækja. Aðgengi að fjármagni hefur minnkað gríðarlega sem gerir fyrirtækjum erfitt fyrir að sækja sér fé. Þetta hefur áhrif á fjármagnskostnað og möguleika til vaxtar og endurfjármögnunar. " Magnús segir ástandið á Íslandi óvenjulegt og að það litist af mikilli óvissu eftir hrun bankakerfisins. „Þessi óvissa endurspeglast í fjármálagerningum sem félagið hefur gert við viðskiptabanka sína til að lágmarka gjaldeyrisáhættu. Þessu til viðbótar hefur gengi krónunnar fallið gríðarlega það sem af er árinu sem veldur því að efnahagsreikningur félagsins stækkar þrátt fyrir töluverða eignasölu. Jafnframt hefur veiking krónunnar í samstæðureikningi þau áhrif að gengisvarnir í móðurfélagi koma fram sem tap í samstæðureikningi." Hann segir neikvæða þróun hlutabréfamarkaðar, sérstaklega síðustu mánuði hafa neikvæð áhrif á afkomu félagsins. „Fjárfestingar Atorku eru í rekstrarfélögum sem gerir það að verkum að áhrif fjármálakreppunnar hafa ekki jafn neikvæð áhrif á félagið og ella. Helstu fjárfestingar Atorku eru í endurnýtanlegri orku, vatnshreinsiiðnaði, plastiðnaði og sérhæfðri flutningaþjónustu." „Atorka hefur síðustu misseri búið sig undir erfiða tíma," segir Magnús einnig. „Félagið lauk sinni stærstu fyrirtækjasölu til þessa um mitt síðasta ár og framlengdi lánasamningum. Atorka hefur síðasta árið selt verulega af eignum sínum og greitt niður skuldir og þannig undirbúið félagið fyrir erfiðara efnahagsumhverfi. Það sem gerðist í byrjun október með hruni íslenska bankakerfisins var þó mun meira áfall en nokkur gat séð fyrir." Að sögn Magnúsar er Atorka, með lungann af sínum fjárfestingum í vel reknum rekstrarfélögum, betur í stakk búið að bregðast við þessum hamförum en ella og mun Atorka áfram styðja við uppbyggingu kjarnafjárfestinga sinna til framtíðar.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Sjá meira